Jæja, afsakið töfina búinn að vera of
latur við að skrifa hérna.
En allavegana, þá er þessi rúmlega vika
bara búin að vera fín.
Á miðvikudaginn byrjaði að snjóa
örlítið... ekkert rosalegt neitt, nema hvað að um kl 11 um kvöldið
fer rafmagnið af allri blokkinni.... víhú... en það breytti svosum
engu þar sem við vorum að fara að sofa, nema þá fyrir aukahitann
hans Bamba og ísskápinn.
Nema hvað, kl 6 um morguninn þá fer húsvörðurin út með snjóblásara
og byrjar að blása fyrir utan gluggann hjá okkur... KLUKKAN 6!!, ég
ekki lítið pirraður, þannig ða ég loka glugganum og held að það
geri eitthvað gagn... en auðvitað ekki.... gluggarnir eru ekki nema
um 2mm þa þykkt.
En allavegana, um kl 6:45 er ég lagður af stað í vinnunna, og fer
útá strætóstopp, nema hvað að ég bíð til kl 7:30 eftir strætó??!
(það er tíminn sem ég á að vera mættur í vinnuna) en aldrei kemur
hann, og heyri ég einhverja þá vera að tala um að 18 keyri ekkert í
dag útaf snjó (danirnir kölluðu þetta Snehelvede)... og minni ég á
það að þetta var kanski svona lala snjór... ekkert rosalega lítið,
en ekkert til þess að brengla öllu systeminu upp.
Nema hvað, að þá ákveð ég að taka lestina (þarf að taka 2 lestir
og A strætó þá til þess að komast í vinnuna, aðeins meira
vesen).
Fer út á lestarstöð og bíð þar í korter (sem er langur tími til að
bíða eftir lestinni), þar til lestin sem stoppar í Flintholm kemur.
Ég bara eitthvað jéss!!! (btw búinn að reyna að hringja í vinnuna
svona 50 sinnum til að láta vita af mér).
Nema að þegar ég kem út á flintholm, þá ætla ég að taka
Klampenborg/hellerup lestina, nema það að þá sé ég auglýsingar um
allt að það sé búið að kansela henni í dag, ÚT AF SNJÓ!!! Ótrúlegt
alveg hreint.
Þannig að ég ákveð að fara til baka, og bíð, og bíð.... þangað til
að einhver rödd í hátalarakerfinu lætur fólk vita af því að lestin
sem keyrir til baka verði sé seinkuð..... vííííí. Þannig ég verð að
bíða þarna á lestarstöðinni, en sem betur fer var bílastæði þarna
rétt hjá þannig að ég gat horft á alla danina sem kunna EKKERT að
keyra í snjó, festa sig aftur og aftur, og fatta samt ekki að það
virkar ekkert að reyna að spóla sig úr svona aðstæðum
(flutningabíll sem spólaði sig með afturendann á undann út af
bílastæðinu og nánast á tré á meðan 2 aðrir sem voru að vinna á
honum líka voru að ýta, og btw, þá fór sá bíll bara á planið til að
snúa við!!!). Ég gat allavegana skemmt mér yfir því.
En áfram heldur röddin í hátalaranum að segja að lestinni sé
seinkað, þannig að ég ákvað að rölta út á metro stöð, sem er í sama
kjarna, svo ég gæti þá hugsanlega tekið metro út á norreport, og
þaðan heim í valby, en þegar þar er komið, er enginn metró sem á að
keyra í þá áttina í dag... af hverju,.... jú út af þessu
Snehelvede.
Ég rölti þá út á S-tog teinana aftur og held bara áfram að bíða,
enda ekkert annað hægt... í þessum skítakulda.
Rúmum einum og hálfum tíma í bið kemur loksins lestin, en hún er
svo svakalega troðin að ég rétt næ að troða mér inn með frekju og
yfirgangi (en ég var einn af þeim fyrstu til að komast í lestina,
þannig að greyið allir hinir 100 farþegarnir sem voru líka að
bíða).
Þannig að í svakalegum þrengslum næ ég loksins að komast til Valby
(þá búin að láta loksins vita af mér í vinnunni), og ákveð ég bara
að fara heim í bili, kominn með nóg af lestar- og strætórápi.
Þegar ég er nýkominn heim, þá kemur Karen loksins heim eftir að
hafa hætt við að taka lestina (út af hringingu frá mér) og
strætóinn ekkert á leiðinni. En kemur Elín skólafélagi hennar með
henni, en hún á heima í Hvidovre og hafði tekið lestina hingað og
ætlaði ða taka strætó, en var því strandarglópur.
Hún sagði okkur það að það hefði verið sagt í útvarpinu að ef þú
værir ekki með hríðir, þá ættir þú bara að halda þig heima.... já,
út af snjó?!!?.
Nema um kl 12 leitið, þá ákveð ég að tékka á strætó aftur, og var
hann byrjaður að ganga aftur... en engu að síður þurfti ég að bíða
í tæpann hálftíma eftir honum, en um kl 1 leitið þá loksins kemst
ég í vinnunna, og yfirmennirnir horfa á mig undrunaraugum og
spyrja.... Hvernig í helvede komstu hingað... ekki labbaðir þú alla
leið, ég bara nei... og sagði þeim alla söguna. Þeir hristu bara
hausinn, og sögðu, þú hefðir bara átt að vera heima í dag.
Varð ég ekki vel þungur í brún og hugsaði með mér, af hverju í
ansk. sögðu þið mér þetta ekki þegar ég hringdi í morgun!!. En ég
var einn af fáum bifvélavirkjunum sem var mættur þann daginn.
Enginn af svíunum voru mættir út af því að brúin var lokuð, engir
varahlutir frá svíþjóð komu þann daginn, og svoleiði
skemmtilegt.
Karen tók þessa mynd... hún sýnir svosum ílla
hversu mikill snjór er hérna þar sem þetta er mikið blásinn snjór
fyrir utan gluggan hjá okkur. Mun meiri snjór útá götu og þurfti ég
að vera að grafa alla bílana út úr sköflum í vinnunni 
Og hana nú.
En á konudaginn, þá förum við Karen í
smá strætóleiðangur eftir að hafa borða amerískar pönnukökur í
morgunmat (þvílíka óhollustan). En við ætluðum að fara í göngutúr í
stóran garð sem er fyrir framan höllina (sem við búum bara rétt
hjá).
En við förum örlítið of langt þar sem við vorum of upptekin við að
spjalla (ég fer btw með þessum strætó á hverjum morgni). Þannig að
við ákveðum bara að taka strætó aðeins lengra því að Karen hefur
aldrei farið þessa leið, og ætlaði ég líka að sýna henni hvar ég
vinn.
En þegar það er búið, þá tókum við strætó til baka, og fórum í
garðinn, sem er alveg SVAKALEGA stór, og skiptist hann í 2 hluta í
raun (vegur á milli) og við löbbuðum bara um 70% af öðrum
helmingnum (hallarhelmingnum) en á hinum helmingnum er m.a.
dýragarðurinn staddur.
En við stoppuðum og fengum okkur heitt Kakó sem ég hafði lagað
kvöldið áður (var afgangur sko). Og áttum við bara alveg rosa rómó
dag saman.

Bambi fékk hjá sér nýjan sand um daginn,
og er allt alveg spikk and span í kringum hann (kallinn ánægður
sko). Breyttum búrinu svolítið fyrir hann og svona.
En við erum með svona bita af berki í búrinu sem hann getur farið
undir (felustaður) og klifrað svolítið í, nema hvað að hann er
búinn að grafa nánast allan sandinn undir í burtu og búa til lítið
sandvirki svona í kringum sig þegar hann vill vera í friði, eða
þegar hann fer að sofa. Alveg æðislegt hvað hann er mikill caracter
(þessar Skegg Agame/Bearded Dragon eðlur eru einmitt þekktar fyrir
að vera með mikinn caracter (enda orðnar vinsælustu
skriðdýragæludýr í heimi)).
Á föstudagskvöldið í síðustu viku þá kom
Óskar með lestinni frá Horsens til Köben, og gat maður ekki látið
það gerast að hitta hann ekki, en við hengum sama á
föstudagskvöldið og svo á Sunnudagskvöldið.
Gerðum svosum ekkert merkilegt nema þá bara að sitja og spjalla og
labba strikið og spjalla. Frábært að hitta hann aftur eftir að hafa
ekki hitt hann í mörg ár, eins og við vorum óaðskyljanlegir
einusinni. Bara vill þakka Óskari æðislega fyrir
hittinginn.

Fóturinn er allur að skána, en ég er
hættur alfarið að nota hækjur, en aftur á móti verð ég svolítið
þreyttur í fætinum svona ef ég er búinn að nota hann mikið.
En ég er ekki ennþá farinn í körfu, því ég get lítið sem ekkert
hlaupið eins og er.
En í gær fór ég samt í fyrsta skipti í ræktina eftir að þetta
gerðist. Og var ég á hlaupa”bretti” í um einn og hálfan tíma
samfleitt. Það var svo góður þáttur á VH1 nefnilega sem ég gat ekki
sleppt mig frá, en það var countdown yfir 40 bestu heavy metal lög
frá upphafi, og viðtal um umsögn um hvert lag fyrir sig (frá System
of a down, Guns ‘n’ Roses til Sepeltura, Black Sabbath og svona)
skemmti mér konunglega yfir því.
Ég og Karen erum orðin hooked á
sjónvarpsþáttunum Heroes, en ég er með fyrstu 12 þættina í tölvunni
hjá mér, og erum við búin með fyrstu 10 þættina... ekkert smá
spennandi. Líður alveg eins og þegar ég var að horfa á Lost, Prison
Break og 24 í fyrsta skipti..... þvílíkt gaman. Hinir upp að þætti
16 eru á leiðinni í “lán” til okkar
.
Ég er eiginlega búinn að ákveða að kaupa
lítinn chopper fyrir sumarið svona til að gera burrað pínulítið
svona hingað og þangað.
En ég kaupi það nýtt frá fyrirtæki sem heitir MC 4 You.. og flytja
þeir inn hjól frá Kína sem heita Lifan. Og ótrúlegt en satt þá hafa
þau verið að standa sig mjög vel.
En þetta hjól sem ég er að spá í heitir Lifan LF250 og er 250cc
chopper sem kemst upp í 120 km/klst.. og þarf ég ekkert meira eins
og er. En það kostar ekki nema 10.000 dkk nýtt og fær maður 2 ára
ábyrgð og allt með því. Btw, þá er Lifan LF250 útlitsklún af Yamaha
Virago.

Og þar sem það er svona lítill mótor í
því þá kostar rosalega lítið að tryggja þetta, þannig að þetta er
eiginlega bara ideal fyrir mig svona til að leika mér á, á meðan ég
er hérna í DK, og verður það svo bara selt á eitthvað klink þegar
ég fer heim.
Já, og á föstudaginn kom Sune aftur til
vinnu eftir 3 mánaða ferðalagið sitt til Tailands, Ástralíu og Nýja
Sjálands, gaman að hitta hann aftur.
Já og svona í lokinn, þá er ég búinn að
bæta slatta af myndum inn á flickr síðuna mína
Njótið vel.
P.s. Endilega commentið... mér þykir
líka gaman að heyra frá ykkur 
Sjáumst vonandi í sumar
Kveðja
p.p.s nennti einhver að lesa þessa
lönguvitleysu frá mér?!?